23.8.2011 | 07:47
Rólegir löggur þarna...
Pæling: Ef enginn bryti lög þá væru þeir óþarfir...kannski jú til aðstoðar í slysum og óhöppum og þegar einhver styttir sér aldur...en við höfum björgunarsveitir sem kannski ættu að vera launuð störf...
en þeir skila engum tekjum til þjóðfélagsins og eru bara álög á ríkinu...það eina sem ég hef uppskorið frá þeim er piparúði í andlitið og spark í klofið...og nú vilja þeir kauphækkun...fáið ykkur bara alvöru vinnu...
Lögreglumenn mjög ósáttir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ólafur Ólafsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Aumingja kallinn, þú hefur náttúrulega verið blásaklaus að syngja í kirkjukórnum :-) Held að löggur skili miklum tekjum í ríkissjóð í formi sekta og svo sparar lögreglan líka þjóðfélaginu stótfé með forvarnarstarfi.
En ætli þú værir ekki farinn að væla Ólafur ef þú værir búinn að vera samningslaus við vinnuveitandann í eitt ár og þá gef ég mér að þú sért í vinnu .
Guðmundur Jóhann Guðmundarson, 23.8.2011 kl. 09:21
Í skóla bað tónlistarkennarinn mig um að mæta ekki meir eftir æfingu með skólakórnum, tók þessari ábendingu jákvætt og hef ekki þanig mig með kórum síðan.
En ég held að sektir séu ekki til að bæta ástand þjóðfélagsins, heldur bara óþarfa auka skattpíning, sektir auka ekkert upp á gjaldeyri inn til landsins heldur bara að peningurinn skiftir bara um hendur frá fólki til ríkisins. Svo held ég að sé nýbúið að semja við kennara og ég er viss um að skólar og kennarar séu bestir í forvarnastarfi, þeir eru jú að fræða börnin okkar hvort sem er...
kveðja að austan mikklu austar en Óskar er staddur...
Ólafur Ólafsson, 23.8.2011 kl. 09:48
þessi "pæling" hjá þér er heimsk og barnaleg, þú ert eins og allir aðrir mannlegir og eins og sýnilegt er, hrikalega algengt að þú gerir heimskupör, sumir gera þau verri eða oftar en aðrir og þá vill hinn almenni borgari ekki þurfa að díla við þær aðstæður, lögreglumenn vinna vinnuna sem fæstir vilja eða gætu hugsað sér, og þurfa að höndla aðstæður sem við hin viljum flest ekki einu sinni vita af.
Egill, 23.8.2011 kl. 11:34
Takk fyrir innlitið Guðmundur Jóhann og Egill
Já ég veit ég er sjálfsagt ekki skarpasti hnífurinn í skúffuni en svona er tjáningarfrelsið...
Er samt að velta því fyrir mér hvað drífur lögreglumenn áframm í vinnunni sinni sem fæstir vilja vinna við, með lausa samninga svona lengi? eru lögreglumenn í starfinu sínu vegna einhverra annarlegra hvata? þörf fyrir völd og að fólk líti upp til sín? Ekki eru það launin!!
Jæja best að fara út að vinna svo hægt sé að borga lögreglumönnunum launin sín, þeir eru jú þjónar okkar fólksins í landinu...
Ólafur Ólafsson, 23.8.2011 kl. 12:16
Alveg er það með ólíkindum hvað það virðist endalaust hægt að toppa heimskuleg blogg hérna á mbl.is
Landfari, 23.8.2011 kl. 12:27
Sæll Landfari, þakka innlitið
Alveg er ég hjartanlega sammála þér
kv
Olli
Ólafur Ólafsson, 23.8.2011 kl. 12:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.