Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hænsnabóndinn á Tjörn og fleira

2. Nóv 2012Mér hefur verið hugsað til hænsnbóndans Norður á bænum Tjörn við Hvammstanga. Af hverju...Jú ég las hvað almenningur hefur skrifað um málið undir grein um bóndan á DV.IS. Þar stendur fólk ýmist með bóndanum eða á móti...mér sýnist að skrifin skiftist þannig að þeir sem þekkja til bóndans standa með honum og öfugt þeir sem þekkja til unga fólksins sem hefur verið úthlutað jörðini standa með þeim auðvitað og þannig á móti bóndanum, og sumir gera mikið úr því að lögum og reglum skuli fylgja sama hvað en öll vitum við að þaug er hægt að túlka eins og við viljum að útkoman verði, það er að segja ef maður er sá sem hefur valdið. Einhver sagði ,,hann hefur aldrey borgað leigu,, hvað vitum við um það? Og hvernig er það á öðrum ríkisjörðum? En hvernig eignast einhver jörð eða lóð? Pabbi minn sagði mér að áður og fyrr hefði fólk eignast jörð ef þú vrst með skeppnur til að draga framm lífið, þá eignaðist þú og þin fjölskylda það land sem þú girtir af til ræktunar svo að þær skeppnur sem þú hístir lifðu af veturinn og síðan hefðu þeir bændur átt í sameign það land þar sem skeppnurnar væru settar á beit sem kallast afréttir eða óskifta eða  eitthvað annað en ég hels að það séu fleiri orð um þetta. Síðan var það kirkjan en ég held að hún hafi bara eignað sér jarðir en hún var sjálfsagt valdameiri áður og fyrr. En mér finnst alltaf jafn skrítið hvernig fólk á jörð og mér finnst það bara asnalegt, sumir eiga jörð og geta í sumum tilfellum selt þær fyrir mjög mikin pening vegna þess að notagildið hefur breist mikið frá upphaflegum notendaþörfum, þá meina ég afi og amma eignast hana á forsendum þess að þaug voru að halda lífi í skeppnum og síðan seinna selur afa og ömmubarnið sömu jörð fyrir stjarfræðilega upphæðir því að á jörðini finnst heitt vatn eða hún liggur að borgarmörkum eða þar sem álver komi til með að rísa....Mjög skrítið...er þetta réttlátt? Er einhver sanngirni í þessu? Fólk segir bara já en þetta hefur alltaf verið svona....er það þá bara allt í lagi?Yfirleitt ef einhver skrifar svona langloku þá er ég löngu hættur að lesa og finn eitthvað styttra til að lesa, þannig ef þú ert en að lesa þá bara þakka ég athygglina.Ég þekki til frá littlu þorpi út á landi, þar voru margir bæir í röð þar sem hver bær var með sínar ræktuðu lóðir sem þeim tilheirðu og svo óskifta eða afréttir. Nú svo vantar kaupmann í þorpið og hann kaupir einn bæin, miðsvæðis. Hann setur upp versun og síðar fer hann í sveitarstórnapólitík. Verður oddviti sveitasjórnar. Þá hugsar hann með sér,,ég er ekki bóndi ég er kaupmaður,, ,,ég þarf ekki þessa óskiftu eða afréttir,, fer hann með plagg á sýsluskrifstofuna þar sem hann strikar á landakort hluta af óskiftuni sem hann telur að honum tilheyri. Hann fær það í gegn og í valdi sínu í sveitastjórnini lætur hann skipuleggja nýja þorpið inn í sínu landi og hefur fjölskylda þessa kaupmanns æ síðan rukkað og lifað á leigutekjum þeirra sem byggðu sér húsnæði í nýja þorpinu. Réttlátt? Eðlilegt?Ég stend með bóndanum á Tjörn, ég þekki hann ekki en góðum sögum fer af honum. Ég vona að hann fái að búa það áframm og  stjórnvöld sjái að sér.Það er svo margt óréttlátt í þessum heimi, ég held það sé umhugsunarefni að ganga í lið með hinum Evrópulöndunum til að almenningur á Íslandi verði fyrir minni órétti svo sem verðtryggð lán, og kvótaeign fárra og jarða eign fárra, kvóti hefur verið keiftur af þeim stærri og heilu bæjirnir hverfa þó svo þeir lofi öðru...hverja erum við að verja með því að ganga ekki í lið með hinum í Evrópu en mér þykir leitt hvað vanst með landhelgistríði sé stefnt í voða en það eru breittir tímar ...  svo eitthvað sé nefnt...Bloggsi  
mbl.is Verður auglýst með haustinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foræðishyggja/forsjárhyggja á Íslandi v/s Evrópusambandið

Foræðishyggja/forsjárhyggja á Íslandi v/s Evrópusambandið
Ég tel mig heppin að geta séð hvernig hlutirnir ganga fyrir sig utan Íslands og að sama skapi óheppin að hafa ekki séð þetta fyrr en fyrir fáum árum.
Ég nefni nokkur dæmi:
1. Ég kaupi bíl og hús á Íslandi og allt í fína, svo skellur kreppan á og ég lendi í greiðsluvandræðum með bílinn og húsið...og hvað, jú ég er settur á LT (lánstraust) listan....ok. Ég hef verið í sama bankanum frá því ég var krakki eða um 34 ár eða frá því að ég fór með fermingapeningin í Sparisjóðin sem varð að Landsbanka og hef ég ekki verið í vanskilum við bankana...síðan bið ég um launa lán til að hreinsa upp yfirdrátt og kreditkortareikning sem ég hef oft fengið en launalánið sem ég var með var að verða uppgreitt...Nei Óli minn var svarið því miður en þú ert á lista LT og við getum ekki lánað þér(í raun ekki lán bara verið að taka til). Peningavöldin á Íslandi eru samþjöppuð og ef þú stendur þig við einn angan af þeim þá ert þú settur út í kuldan. Ég held að ég get fullirt að þetta er hvergi nema á Íslandi og mér finnst þetta vera mannréttindabrot. Síðan hef ég myndað mér viðskiftavild í útlöndum og þar verður maður bara að standa sig en maður getur ekki dregið vini og skildmenni nyður með sér og hér er ekki mafía peningavalda sem setur þig út í kuldan ef þú stendur þig ekki gagnvart einum þeirra.
2. Við hrunið minnka tekjurnar og skuldirnar fara upp úr þakinu og þá velur maður hver fær og hver fær ekki...einn að þeim sem varð út undan hjá mér var söfnunarsjóður lífeyrisjóða og hvað gerir hann...jú hann stefnir mér og ættlar að bjóða upp það sem eftir er hjá mér...hvað er lífeyris sjóður...ég hélt að hann væri fyrir mig þegar ég kemst á eftirlaun eða þarf á honum að halda af öðrum ástæðum...en þeir telja mér fyrir bestu að ég sé gerður algerlega eignarlaus.
3. Ég man eftir því að þegar ég var að gera upp útsvar við Keflavíkurbæ þá samdi ég við bæjaritara og það var ekki verið að vaxta greiðslurnar en nú ef þú lendir í vanskilum við bæ þá er draslið sent til einka fyrirtæki peningamannana sem rukkar þig með öllum hugsanlegum kostnaði og býður upp af þér draslið á eftir. Er ekki bærin okkar eða er hann peningamannana...þú færð gluggapóst með hótunum og ekki nóg með það, þau hringja í þig og segja þér hvað stendur í bréfinu ef þú segist vera hver þú ert, þegar þú svarar og þau segja þér hvað stóð í bréfinu þá leggst 2500kr við skuldina en þér er ekki sagt frá því.
4. Ég hef ekki sett mig inn kosti og galla þess að ganga í Evrópu en mér leiðist svolítið að sjá kvótakónga, kúlulánþega og peningastjórnunarfólk keyra á landcruserum og pajeroum og spíta yfir mig slyddudrulluni þegar ég staulast út í búð til að kaupa í grjónagrautin en þá hugsa ég hvað er ég að verja með því fara ekki í Evrópulifnað á Íslandi.
5. KV
6. Óli

Um bloggið

Ólafur Ólafsson

Höfundur

Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson
Íslendingur... bróðir Línu, Jóa og Palla...yngstur
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Georgia Tibilis 30aug11 039
  • Georgia Tibilis 30aug11 059
  • Georgia Tibilis 30aug11 062
  • Georgia Tibilis 30aug11 051
  • Georgia Tibilis 30aug11 049

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband