Fréttir frá IndónesíuEr nú ekki mikið að eltast við fréttir hér í Indónesíu, en hef fylgst meira með fréttum á Íslandi í gegnum netið. Ég ákvað því að kíkja á þetta hér ég er nú búin að vera hér nú í einhverjar 3 vikur og ekki get ég kvartað yfir Iceland Express á þessu svæði alla vega.
Nema það sem er í fréttum hér er spilling....Já það er þessi gjaldkeri Democratic Party sem er flokkur forsetans hér í Indónesíu, gjaldkerinn heitir Muhammad Nazarudding, þegar það átti að yfirheyra manninn þá flúði hann og lét sig hverfa, þetta gerðist í júlí en eftir að hann hvarf þá hefur hann sent frá sér skeyti um fleiri sem eru viðrinir spillinguna og komið mörgum illa. Það var síðan síðastu viku að þeir fundu manninn, hann hafði flúið til höfuðborgar Kólumbíu og var síðan í frammhaldi handtekin af þarlendum yfirvöldum og flogið til baka í einkaþotu. Það fór nátturulega fyrir brjóstið á fólki hvað hann fékk grand meðhöndlun. Nú hefur hann beðið um að fjölskylda hans verði ekki látin gjalda hans aðild að spillinguni í skiftum fyrir að hann segi söguna alla frammi fyrir rétti.
Veður : heitt, allann daginn og á nóttini líka
Íþróttir : það var örugglega eitthvað merkilegt en ég bara tók ekki eftir því..
Enn svo er Ramadan hér á fullu og endar ekki fyrr en í lok mánaðarins,
en fyrir þá sem ekki vita þá er Ramadan föstumánuður múslima og mega
þeir ekki borða né drekka frá sólarupprás til sólarlags sem veldur því að
folk hegðar sér öðruvísi en vanalega og maður bara verður að taka tilit til þess
Svo spúa elgos hér annað slagið og jarðskjálftar en ekkert svoleiðis undanfarið
Að endingu : það er verið að rifast um allan heim um spillingu og að rangar ákvarðanir séu teknar
aðalatriðið er að fólk verður bara að halda ótrautt áframm
það er enginn fullkomin nema kannski Árni Sigfússon er helvíti fínn kall.
Kveðja frá Indónesíu
Olli
Athugasemdir
hey Óli,
frétt frá Grænlandi hér er kalt á daginn og kaldara á nóttunni
til hamingju með bloggið.......orðinn kallinn á kassannum og þú gleymdir að segja í kynningunni að þú værir frændi hans Villa
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, 23.8.2011 kl. 22:11
Hæ heldurðu að einhver lesi þetta þá??
Ólafur Ólafsson, 23.8.2011 kl. 22:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.